UM BRAUTARHOLT

Golfklúbbur Brautarholt var stofnaður 2011 og opnað var fyrir golfleik á Brautarholtsvelli í lok júlí 2012. Núverandi stjórn skipa; Gunnar Páll Pálsson, formaður, aðrir í stjórn eru Bjarni Gunnarsson og Bjarni Pálsson. Aðsetur GBR er að Brautarholti 1, Kjalarnesi, 162 Reykjavík. Sími  566 6045.

Þrír golfvallararkitektar hafa komið að gerð golfvallarins í Brautarholt. Edwin Roald hannaði grunn skipulag brauta, Michael Kelly mótaði landslag á fyrstu 11 brautunum og Tony Ristola hannaði síðustu 7 brautirnar.

Á lista yfir bestu golfvelli heims

Golfscape

Brautarholtsvöllur er í 62. sæti á lista bókunarvefsíðunnar Golfscape yfir bestu golfvelli heims.

top-100

GolfWorld

Brautarholt er í sæti 61 yfir bestu golfvelli í Evrópu á lista GolfWorld yfir Top 100 golfvelli í continental Europe.

T100 logo (002)

Staðsetning

Golfvöllurinn er í landi Brautarholts á Kjalarnesi, beygt er af Vesturlandsvegi við Grundarhverfi á Kjalarnesi og ekið sem leið liggur að Brautarholti. Völlurinn liggur yst á hinu eiginlega Kjalarnesi með útsýni til borgarinnar.

Almennir opnunartímar golfvallarins er frá 1. maí til 30. september,

alla daga vikunnar frá 09:00 – 22:00

Golfvöllurinn liggur við sjávarsíðuna og því má ganga út frá að almennt verður völlurinn opnaður með fyrstu völlum á vorin og lokað með þeim síðustu.

Rauð aðild - Árgjald 53.900 kr.
5 skipta kort og aðild að GSÍ
Græn aðild - Árgjald 89.900 kr.
10 skipta kort og aðild að GSÍ
Græn aðild - Árgjald 124.300 kr.
15 skipta kort og aðild að GSÍ
Full aðild - Árgjald 210.000 kr.
Full aðild, ótakmarkaður fjöldi hringja.
Vallargjald 18 holur 15.800 kr.
Vallargjald 12 holur 12.900 kr.
Kylfur 7.000 kr.
Golfbíll 9 holur 6.500 kr.
Golfbíll 18 holur 9.500 kr.
Kerrur 2.000 kr.
Rauð aðild

53.900 kr. / ár

Græn aðild

89.900 kr. / ár

Blá aðild

124.300 kr. / ár

Full aðild

210.000 kr. / ár

Í klúbbhúsinu okkar er lítil verslun og veitingastaður með takmörkuðu úrvali. Í versluninni erum við með bolta, boltamerki, treyjur o.fl. með merki. Á veitingastaðnum erum við með súpu, kaldar samlokur, súkkulaðistykki, vatn, gosdrykki, bjór og létt vín.

Hola 1
PAR 5
HCP 5

Aim in the middle of the fairway short of the three fairway bunkers. Don´t be tempted into any shortcuts in the second shot, if you are short lay the next shot short on the fairway below the slope. The approach should aim to the left and use the slopes to feed your ball next to the pin.

1
Play Video

Þú getur spilað golf eftir miðnætti frá 1. júní til 20. júlí. Í upphafi og lok miðnættisgolftímabilsins dimmir stuttu eftir miðnætti, en um miðja tímabilið geturðu spilað lengur fram á nótt. Ef það er skýjað verður frekar dimmt þegar klukkan nálgast eitt að nóttu. Vinsamlegast athugið að það getur orðið kalt seint á nóttunni. Við mælum með því að gestir okkar sem hyggjast spila miðnættisgolf byrji fyrr og klári golfhringinn rétt eftir miðnætti.

Almennir opnunartímar golfvallarins er frá 1. maí til 30. september,

alla daga vikunnar frá 09:00 – 22:00

Golfvöllurinn liggur við sjávarsíðuna og því má ganga út frá að almennt verður völlurinn opnaður með fyrstu völlum á vorin og lokað með þeim síðustu.

Robotar – sláttuvélar

  • Ef roboti færir bolta út stað, skal leggja bolta á upphaflegan stað (sem þarf að áætla ef hann óþekktur). Regla 9.6. Ef bolti á hreyfingu hittir robota verður að leika honum þar sem hann liggur. Reglu 11.1

Lausn frá óeðlilegu ástandi vallaraðstæðum (þar á meðal óhreyfanlegum hindrunum). Regla 16.1a.

  • Jarðfastir steinar á snöggslegnu svæði á almenna svæðinu.
  • Fjarlægðarmerkingar, hælar, ruslafötur og skilti á almenna svæðinu.
  • Göngubrú yfir glompu milli 5. og 6. Brautar, ef bolti liggur í glompu eða undir göngubrú skal hann látinn falla innan glompu.

Vitasvæði

  • Á 5. braut, er sjávarborð hverju sinni mörk vatnshindrunar.
  • Þegar bolti leikmanns hefur ekki fundist eða það er vitað eða nánast öruggt að boltinn er út af má leikmaðurinn halda áfram á eftirfarandi hátt, í stað þess að taka fjarlægðarvíti. Gegn tveimur vítahöggum, má leikmaðurinn taka lausn með því að láta upphaflega boltann eða annan bolta falla á lausnarsvæði (sjá reglu 14.3): Lausnarsvæði er þá á annaðhvort þar sem upphaflegi boltinn er talinn hafa stöðvast/farið út fyrir vallarmörk eða á brautinni sem verið er að spila næst viðmiðunarpunkti þar sem bolti týndist/fór út af, en þó ekki nær holu.

Vallarmörk innan vallar

  • Æfingar flöt og vipp svæði næst við klúbbhús, vinstra meginn við holu 9, merkt með hvítum hælum, er út af.

Bætt lega í glompu, færa um lengd kylfugrips

  • Þar sem hrífur hafa verið fjarlægðar úr glompu og ástand hennar er mjög ójafnt þá má leikmaður taka vítalausa lausn einu sinni áður en höggið er slegið, með því að leggja upphaflega boltann innan lengd kylfugrips (ekki pútter) frá viðmiðunarstað, en með eftirfarandi takmörkunum: Það má ekki vera nær holunni en viðmiðunarstaðurinn, og verður að vera í glompunni.

Víti fyrir slæma umgengni

  • Samkvæmt staðarreglu dæmist eitt högg í víti í hvert skipti sem kylfingar henda rusli á jörðina s.s. nikotínpúða og vindlingum. Sama á við ef kylfingar laga ekki bolta- eða kylfuför ef hægt er. Víti fellur niður ef menn bæta úr/laga annað boltafar.

Klæðaburður

Við förum fram á að gestir séu í almennt viðurkenndum golf fatnaði eða “smart casual” útivistarklæðnaði.

Reglur um slæmt veður

Hópar sem hafa sérpantað fleiri en 4 rástíma þurfa að afpanta með 48 klukkustunda fyrirvara, annars verða þeir að greiða 50% gjald. Sá sem pantar rástíma er ábyrgur fyrir greiðslu.

Vallarstjóri hefur heimild til að loka golfvelli vegna veðurs eða viðhalds og eiga þá afbókunarskilmálar ekki við og mun klúbburinn reyna að finna nýjan tíma en ef það er ekki hægt þá er greitt vallargjald endurgreitt.  Kylfingar eiga engar frekari kröfur vegna slíkra aðstæðna umfram útlagt greitt vallargjald.

Að spila golf á frosinni jörð getur valdið skemmdum á grasinu. Vallarstjóri getur bannað leik þar til hitastig hefur hækkað.  Ef ekki er hægt að endurskipuleggja rástíma síðar um daginn eða næstu daga verður endurgreiðsla boðin fyrir þá sem hafa greitt vallargjald.

Skilgreining á slæmt veður er annaðhvort þegar gul viðvörun er fyrir svæðið (meira en 15 m/s) eða vallarstjóri lokar vegna veðurs.

Hegðunarreglur

  • Golfarar skulu gæta að leikhraða (svo sem að undirbúa högg meðan aðrir eru að slá, ganga rösklega á milli högga og að næsta teig) Hægur leikur hefur áhrif á aðra golfara sem á eftir koma.
  • Golfari á að slá golfhögg innan 40 sekúnda frá því að leikmaður hefur möguleika á að slá án truflana frá meðspilurum eða þegar óhætt er að slá vegna golfara á undan (og vanalega á styttri tíma).
  • Iðkið sanngjarna leik bæði á vellinum og utan hans.
  • Vinsamlegast hendið ekki rusli.
  • Vinsamlegast gætið varúðar meðfram ströndinni. Grýtt svæði geta verið hál.
  • Vinsamlegast lagið kylfu- og boltaför.
  • Skiljið ekki kylfur/kylfahlífar eftir á jörðinni eða annað s.s. föt/búnað. Sláttuvélmenni geta valdið skemmdum.

Skilmálar fyrir leigu á golfbílum hjá Golfklúbbi Brautarholts

Með því að leigja golfbíl hjá Golfklúbbi Brautarholts samþykkir leigutaki eftirfarandi skilmála:

1. Ábyrgð og tjón

  • Full ábyrgð: Leigutaki ber fulla bóta- og skaðabótaábyrgð á golfbílnum á meðan leigutíma stendur.
  • Leigutaki ber fulla ábyrgð á öllu tjóni sem kann að verða á bílnum, velli eða þriðja aðila sem rekja má til gáleysis eða háskalegrar notkunar.
  • Ef óhapp verður eða skemmdir koma í ljós á bílnum, ber leigutaka að láta starfsfólk vita strax að loknum hring.

2. Skilyrði fyrir akstri

  • Þeir sem hafa gilt ökuskírteini hafa heimild til að aka golfbílnum.
  • Stjórnandi þarf að vera að lágmarki 18 ára.
  • Stranglega bannað að stjórna golfbíl undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Sömu reglur gilda um akstur golfbíla og annarra vélknúinna ökutækja samkvæmt umferðarlögum.

3. Umgengni og akstursreglur

  • Hámarksfjöldi í hverjum bíl eru tveir einstaklingar.
  • Ávallt aka á stígum þar sem því verður við komið. Bannað er að aka á teigum, flötum og í kringum flatir (glompur/forflatir)
  • Leigutaki skal fylgja öllum merkingum á vellinum og fyrirmælum frá vallarstarfsmönnum eða eftirlitsmönnum.

4. Skil á bíl

  • Leigutaki skal skila bílnum á tilgreindan stað við klúbbhúsið að loknum leigutíma og taka rusl og persónulega muni.

5. Brot á skilmálum

  • Golfklúbburinn áskilur sér rétt til að stöðva notkun bílsins fyrirvaralaust ef leigutaki gerist brotlegur við ofangreindar reglur, án endurgreiðslu á leigugjaldi.

Siðareglur Golfklúbbs Brautarholts

Sem félagi í Golfklúbbi Brautarholts ætla ég:

  • Ætíð að taka tillit til annarra golfspilara sem og starfsmanna vallarins.
  • Laga bolta- og kylfuför og taka upp rusl.
  • Sýna aldrei af mér ofbeldi, kynferðislega áreitni eða særandi hegðun.
  • Tilkynna brot á siðareglum og alla kynferðislega áreitni eða ofbeldi.
  • Leika af heiðarleika og samkvæmt golfreglum.
  • Bera virðingu fyrir hæfileika og getu annarra kylfinga.
  • Forðast neikvæð ummæli og hafa ávallt stjórn á skapi mínu.

Siðareglur UMFÍ, ÍSÍ og ÍBR

Stefna Golfklúbbs Brautarholts gegn einelti og kynbundnu ofbeldi

Öllum einstaklingum sem starfa hjá Golfklúbbi Brautarholts (GBR) eða taka þátt í starfi þess sem iðkendur eða sjálfboðaliðar skal tryggt öruggt umhverfi og virðing. Einelti, ofbeldi eða kynferðislegt áreiti er ekki liðið og getur varðað brotrekstrarsök. Ef starfsmaður eða félagsmaður upplifir einelti, ofbeldi eða kynferðislegt áreiti skal strax tilkynna það til framkvæmdastjóra eða formanns. Framkvæmdastjóri/formaður skal bregðast við með því að ræða við aðila, reyna að finna lausn og veita viðvörun. Golfklúbburinn skal taka öllum tilkynningum alvarlega:

  • Ef menn eru í vafa um hvernig eigi að bregðast við skal hafa samband við Samskiptaráðgjafa ÍSÍ í síma 839 9100 eða í tölvupósti sigurbjorg@dmg.is. Einnig má hafa samband beint við lögreglu eða barnaverndaraðilar í síma 112.
  • Ef þolandi er lögráða skal sterklega hvetja viðkomandi að kæra málið til lögreglu. Hringja í 112.
  • Ef brotið er gegn ólögráða einstaklingi ber að tilkynna til Barnaverndar í síma 112.

Ef þú verður fyrir áreiti eða ofbeldi:

Jafnréttis og aðgerðaáætlun Golfklúbbs Brautarholts

  • Golfklúbbur Brautarholts (GBR) skal stuðla að jöfnum tækifærum félagsmanna og vinnustaðurinn skal vera eftirsóknarverður þar sem jafnrétti og jafnræði kynjanna er virt í hvívetna.
  • GBR skal veita kynjum jafnan aðgang að rástímum og æfingartímum. GBR mun kappkosta að hafa hæfa þjálfara og sambærilega aðstöðu og aðbúnað fyrir bæði kyn.
  • Starfsmenn skulu njóta launa- og kjarajafnréttis óháð kyni.
  • Við skipan í nefndir, ráð og stjórnir á vegum félagsins skal þess gætt að hlutfall kynja sé sem jafnast.

Aðalfundur

Aðalfundur Golfklúbbs Brautarholts var haldinn 21.mars 2026. Stjórn var endurkjörin og ársreikningur samþykktur. Farið var yfir opnun á íþróttamiðstöð með golfhermum að Suðurlandsbraut 4 ásamt framkvæmdum við stækkun golfvallarins í Brautarholti í 18 holur.