Brautarholt er 18 holu golfvöllur í einstakri íslenskri náttúru sem hefur vakið alþjóðlega athygli. Völlurinn liggur meðfram klettóttri strönd með útsýni út á hafið og til borgarinnar. Að spila Brautarholt er einstök upplifun.
Við erum aðeins í hálftíma akstursfjarlægð frá Reykjavík. Brautarholt er í 61 sæti yfir bestu golfvelli Evrópu hjá Golf World og besti golfvöllur á Íslandi samkvæmt tímaritinu GolfDigest.